TALIS-rannsóknin
TALIS rannsóknin er framkvæmd af OECD og er ætlað að fylla upp í þá mynd af skólakerfum landanna, sem þegar hefur fengist úr öðrum alþjóðlegum rannsóknum svo sem PISA.
Aflað er gagna frá kennurum og skólastjórnendum á unglingastigi um störf þeirra, vinnuumhverfi og aðstæður. Næsta fyrirlögn verður á vorönn 2023. Þá verður könnunin einnig lögð fyrir starfsfólk leikskóla. Í fyrri fyrirlögnum hér á landi var aflað gagna frá kennurum á yngsta- og miðstigi (2008) og á framhaldsskólastigi (2013) samhliða unglingastiginu sem er fastur liður í TALIS rannsókninni.
Í rannsókninni gefst kennurum, skólastjórum og öðru starfsfólki kostur á að lýsa starfsaðstæðum sínum, starfsháttum, endurgjöf, starfsþróun, starfsánægju og öðrum mikilvægum þáttum í starfi þeirra.
Hér á landi er ávallt lagt fyrir allt þýðið (ekki úrtak) til þess að ná tilskyldum þátttakendafjölda. Gerð er krafa um að 75% skóla og 75% starfsmanna í þýðinu taki þátt til þess að niðurstöður séu birtar og samanburður gerður við önnur lönd í skýrslum OECD.
Menntamálastofnun sér um framkvæmd rannsóknarinnar en nýtur aðstoðar mennta- og menningarmálaráðuneytis og fagfélaga Kennarasambands Íslands.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti fjármagnar rannsóknina, að hluta til með styrk frá Evrópusambandinu.
Skýrslur og kynningarefni
2018
- TALIS 2018 - leikskólastig, starfshættir og viðhorf starfsfólk leikskóla
- Íslensk skýrsla með niðurstöðum á unglingastigi grunnskóla
- What do teachers tell us about their work and what matters to them? - TALIS 2018
2013
- Íslensk skýrsla 2013 með niðurstöðum á unglingastigi
- Samantekt - helstu niðurstöður TALIS 2013
- Helstu niðurstöður úr TALIS skýrslu OECD 2014
2008
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.