Skaðabótaréttur
Löggjöf á sviði skaðabótaréttar er á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins, sem heldur utan um nauðsynlegar lagabreytingar, skipar örorkunefnd og setur reglugerð um starfshætti hennar.
Örorkunefnd gefur álit um miska- eða örorkustig, í samræmi við skaðabótalög, og semur töflur um miskastig. Í nefndinni eiga sæti þrír fulltrúar sem eru skipaðir af ráðherra til sex ára í senn og skulu tveir nefndarmenn vera læknar og einn lögfræðingur og er hann formaður nefndarinnar.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Örorkunefnd
Örorkunefnd starfar á grundvelli 10. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Sjá upplýsingar um meginverkefni nefndarinnar hér:
Persónuréttur
Síðast uppfært: 16.8.2019
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.