A.01. Ísland ljóstengt
Aðgerðinni er lokið | |
Tengiliður Hólmfríður Sveinsdóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu [email protected]
Fréttir
27.01.22 Byggðastyrkir styðja við áætlun fjarskiptasjóðs. Aðgerðin hófst árið 2017 og það ár var 100 m.kr. úthlutað í byggðastyrki. Þannig hefur samtals 400 m.kr. verið veitt til 30 sveitarfélaga á tímabilinu 2017-2021.
18.12.20 24 sveitarfélög hafa fengið styrk. Áætlað er að verkefninu verði lokið fyrir árslok 2021.
12.06.20 Stjórnvöld hraða ljósleiðaravæðingu í dreifbýli
29.11.19 Allir byggðakjarnar landsins með ljósleiðara eftir tenginu til Mjóafjarðar
22.03.19 Samið við 23 sveitarfélög um styrki til ljóðleiðaravæðingar í dreifbýli
18.02.19 Úthlutun úr Fjarskiptasjóði vegna ljósleiðaravæðingar
08.02.19 Ísland ljóstengt - úthlutað eftir viku
20.11.18 Ísland ljóstengt: Svör við spurningum um umsóknarferli A-hluta 2019
05.11.18 Opnað fyrir umsóknir um styrki í verkefninu Ísland ljóstengt
Verkefnið
Verkefnismarkmið: Að öll lögheimili og fyrirtæki með heilsársbúsetu eða starfsemi í dreifbýli eigi kost á ljósleiðaratengingu.
Veittir verði byggðastyrkir til tiltekinna strjálbýlla sveitarfélaga og þeim gert hægara um vik við lagningu ljósleiðarakerfa. Byggðarlög sem búa við veikan fjárhag, mjög dreifða byggð, neikvæða byggðaþróun og lágt hlutfall háhraðanettenginga njóti forgangs. Við lok verkefnis árið 2020 eigi 99,9% lögheimila/fyrirtækja með heilsársbúsetu/starfsemi í dreifbýli kost á minnst 100 Mb/s þráðbundinni nettengingu.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Sveitarfélögin.
- Dæmi um samstarfsaðila: Fjarskiptasjóður.
- Tímabil: 2018–2020.
- Tillaga að fjármögnun: 300 millj. kr. úr byggðaáætlun.