Hoppa yfir valmynd

Aðgerð

C.01. Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða

Litur sem táknar stöðu aðgerðar Aðgerðin er í vinnslu

Fréttir af aðgerðinni

28. október 2024  Opnað fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

15. febrúar 2024  Tíu verkefni fá alls 130 milljónir króna af byggðaáætlun

2. nóvember 2023  Opnað fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

14. febrúar 2023  Tólf verkefni fá 130 milljónir til að efla byggðir landsins

29. nóvember 2022  Opnað fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Tengiliður    

Sigríður K. Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun - [email protected]

Aðgerðin 

Markmið: Að heimafólki verði færð aukin ábyrgð á ráðstöfun fjármuna og sóknar¬áætlanir landshluta verði tengdar við byggðaáætlun.

Stutt lýsing: Landshlutasamtök sveitarfélaga geti í samstarfi við haghafa í hverjum landshluta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Verkefni sem talin eru hafa varanleg áhrif, eru atvinnuskapandi og hvetja til nýsköpunar verði í forgangi. Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf með gerð viðaukasamninga við sóknaráætlanir viðkomandi landshluta um tiltekin verkefni eftir forgangsröðun heimafólks.

  • Ábyrgð: Innviðaráðuneytið. 
  • Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun og landshlutasamtök sveitarfélaga. 
  • Dæmi um samstarfsaðila: Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál, ráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög, háskólar, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar.
  • Tímabil: 2022–2026.
  • Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Sóknaráætlanir landshluta, stefnur/áætlanir ríkisins sem hafa áhrif á byggðaþróun.
  • Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11, einkum undir¬markmið 11.a.
  •  Tillaga að fjármögnun: 700 millj. kr. úr byggðaáætlun. 

Efnahagsmál og opinber fjármál
Sveitarstjórnir og byggðamál
Vinnumál
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta