B.08. Fjarvinnslustöðvar
Aðgerðin er í vinnslu | |
Tengiliður Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu
[email protected]
Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun
[email protected]
Fréttir
02.05.2022 Styrkir veittir til fjögurra fjarvinnslustöðva
14.01.22 Opið fyrir umsóknir um framlög vegna fjarvinnslustöðva
27.01.22 Þrisvar hefur verið úthlutað styrkjum úr samkeppnis-potti, samtals að upphæð 158,6 m.kr. Sjö stofnanir fengu samtals níu styrki. Ein stofnun hlaut styrk án auglýsingar en með vísan í samþykkt ríkisstjórnar frá því í ágúst 2019.
29.03.20 133,6 milljónir í styrki til fjarvinnslustöðva
02.03.20 Samkomulag um að efla rafræna birtingu reglugerða
27.12.19 Fjarvinnslustöðvar fá 24 milljónir króna í verkefnastyrki
30.10.19 Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna fjarvinnslustöðva 2019
27.11.18 Fjarvinnslustöðvar fá 30 milljónir króna í verkefnastyrki
14.09.18 Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna fjarvinnslustöðva 2018
Verkefnið
Verkefnismarkmið: Að koma opinberum gögnum á stafrænt form og fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni.
Komið verði á laggirnar starfsstöðvum á nánar tilgreindum svæðum sem fái það verkefni að koma opinberum gögnum stjórnvalda á stafrænt form. Ríkið styðji við þær stofnanir sem fara í slík átaksverkefni, t.d. með því að endurgreiða allt að 80% af kostnaði við hvert stöðugildi. Meðal stofnana sem geta nýtt sér þetta úrræði verði Þjóðskjalasafn Íslands, Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, sýslumenn, utanríkisráðuneytið og Þjóðminjasafn Íslands. Árangur af verkefninu verði mældur með fjölda fjarvinnslustöðva, fjölda stofnana sem nýta þjónustuna og fjölda stöðugilda.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneyti.
- Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Mennta- og menningarmálaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, utanríkisráðuneyti, önnur ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög.
- Tímabil: 2018–2024.
- Tillaga að fjármögnun: 300 millj. kr. úr byggðaáætlun.