C.06. Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Fréttir af aðgerðinni
Janúar 2024 Stafrænt áætlanakerfi var innleitt árið 2022. 62 af 64 sveitarfélögum landsins staðfestu endurskoðun fyrir árið 2023. Áætlanirnar ná til 99,8% af íbúum landsins. HMS vinnur nú með sveitarfélögum að endurskoðun og uppfærslu húsnæðisáætlana fyrir 2024. Tólf sveitarfélög hafa nú þegar staðfest endurskoðun. Niðurstöður húsnæðisáætlana eru aðgengilegar í mælaborði HMS. Þar má m.a. finna spá um þróun mannfjölda, áætlun um hversu margar íbúðir verði þörf fyrir á næstu árum og hvernig sveitarfélögin hyggist skapa skilyrði til uppbyggingar með framboði byggingarhæfra lóða.
Desember 2022 Hvað er byggt í hverju sveitarfélagi? Frétt af vef innviðaráðuneytisins.
Tengiliður
Lísa Margrét Sigurðardóttir, innviðaráðuneytinu - [email protected]
Stutt lýsing: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vinni að því að innleiða stafrænar hús¬næðis¬áætlanir með það að markmiði að auðvelda sveitarfélögum gerð þeirra og uppfærslu og auka áreiðanleika þeirra upplýsinga sem þar koma fram. Sveitarfélög skili áætlunum sínum í áætlanakerfi HMS. Stuðlað verði að því að sveitarfélög vinni saman að gerð húsnæðisáætlana, t.d. á vettvangi landshlutasamtaka. Framkvæmd verði sameiginleg þarfagreining, m.a. í tengslum við landsskipulagsstefnu, svæðisskipulag og þá þætti í aðalskipulagi sem snúa að framboði og eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði, einkum til leigu. Í húsnæðisáætlunum komi fram hvernig íbúðaþörf mismunandi hópa verði mætt, þ.m.t. að fötluðu fólki sem býr á stofnunum eða herbergjasambýlum verði boðnir aðrir búsetukostir og staðan á því verkefni kortlögð og metin við árlega endurskoðun húsnæðisáætlunar.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög og Skipulagsstofnun.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Húsnæðis- og skipulagsáætlanir sveitarfélaga, landsskipulagsstefna.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11, einkum undirmarkmið 11.1, 11.3 og 11.a.
- Tillaga að fjármögnun: 12,5 millj. kr. af byggðaáætlun.