Starfsemi Jöfnunarsjóðs
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga starfar á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga. Innviðaráðherra hefur á hendi yfirstjórn Jöfnunarsjóðs en honum til ráðuneytis er sjö manna ráðgjafarnefnd sem skipuð er til fjögurra ára að loknum sveitarstjórnarkosningum. Sex nefndarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga en einn er skipaður af ráðherra án tilnefningar og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.
Jöfnunarsjóður hefur starfað óslitið síðan 1937. Við breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga árið 1990 fór fram umtalsverð endurskoðun á starfsemi sjóðsins er fólst einkum í því að jöfnunarhlutverk hans var stóraukið. Auk þess voru sjóðnum falin tiltekin verkefni til að greiða fyrir breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og stuðla að sameiningu sveitarfélaga. Helstu breytingar, sem gerðar hafa verið á sjóðnum síðan, tengjast yfirfærslu alls grunnskólakostnaðar frá ríki til sveitarfélaga þann 1. ágúst árið 1996 og yfirfærslu málefna fatlaðs fólks 1. janúar 2011.
Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
Ríki og sveitarfélög gerðu árið 2022 nýtt samkomulag um kostnað við eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnámsins. Á grundvelli þess veitti ríkissjóður 730,1 m.kr. vegna verkefnisins árið 2024 og annaðist Jöfnunarsjóður sveitarfélaga úthlutun og greiðslur framlagsins.
Árið 2024 er um eftirfarandi verkefni að ræða á grundvelli viðaukans frá 29. mars 2022:
- Námsgagnasjóður, 80,0 m.kr.
- Vistheimilið Bjarg, 105,1 m.kr.
- Tölvumiðstöð fatlaðra, 13,8 m.kr.
- Sumardvalarheimilið í Reykjadal, 43,2 m.kr.
- Endurmenntunarsjóður grunnskóla, 65,7 m.kr.
Hér að neðan má sjá aftektir fyrir verkefni Jöfnunarsjóðs
- Tímabundin tilfærsla verkefna frá ríki - aftektir miðað við íbúatölur 1. janúar 2017
- Tímabundin tilfærsla verkefna frá ríki - aftektir miðað við íbúatölur 1. janúar 2018
- Tímabundin tilfærsla verkefna frá ríki - aftektir miðað við íbúatölur 1. janúar 2019
- Tímabundin tilfærsla verkefna frá ríki - aftektir miðað við íbúatölur 1. janúar 2020
- Tímabundin tilfærsla verkefna frá ríki - aftektir miðað við íbúatölur 1. janúar 2021
- Tímabundin tilfærsla verkefna frá ríki - aftektir miðað við íbúatölur 1. janúar 2022
- Tímabundin tilfærsla verkefna frá ríki - aftektir miðað við íbúatölur 1. janúar 2023
- Tímabundin tilfærsla verkefna frá ríki - aftektir miðað við íbúatölur 1. janúar 2024
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs
Hlutverk ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs er að gera tillögur ráðherra um úthlutanir framlaga úr sjóðnum annarra en bundinna framlaga, sbr. reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipar formann og varaformann án tilnefningar en Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefnir sex fulltrúa og jafn marga til vara.
Starfsfólk sjóðsins
- Guðni Geir Einarsson, forstöðumaður
- Árni Sverrir Hafsteinsson, sérfræðingur
- Elmar Björnsson, sérfræðingur
- Sigrún Dögg Kvaran, sérfræðingur
Aðsetur Jöfnunarsjóðs
Innviðaráðuneyti
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Sölvhólsgötu 7
101 ReykjavíkSími: 545 8200
Bréfasími: 552 7340
Starfsemi Jöfnunarsjóðs
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Stofnanir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.