Ábyrgð á launum við gjaldþrot
Um ábyrgð á greiðslu vangoldinna krafna launamanna við gjaldþrot vinnuveitanda gilda lög um Ábyrgðasjóð launa. Markmið laganna er að tryggja launamönnum og lífeyrissjóðum greiðslur vegna vangoldinna krafna þeirra við gjaldþrot vinnuveitanda eða þegar dánarbú hans er til opinberra skipta og erfingjar ábyrgjast ekki skuldbindingar.
Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslu á kröfum um vangoldin laun, bætur vegna slita á ráðningarsamningi, orlof, bætur vegna vinnuslysa og lífeyrisiðgjöld í bú vinnuveitanda sem hefur staðfestu og rekur starfsemi hér á landi. Ábyrgð sjóðsins er háð því skilyrði að kröfurnar hafi verið viðurkenndar sem forgangskröfur samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti með fyrirvara um takmarkanir og frávik sem kveðið er á um í lögunum.
Ábyrgðasjóður launa lýtur þriggja manna stjórn sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Ráðherra skal að fengnum tillögum stjórnar Ábyrgðasjóðs launa setja í reglugerð nánari fyrirmæli um framkvæmd laganna.
Heimilt er að kæra til félagsmálaráðuneytisins ákvarðanir Ábyrgðasjóðs launa sem teknar eru á grundvelli laganna innan tveggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina. Úrskurðir ráðuneytisins fela í sér endanlega stjórnvaldsákvörðun.
Sjá einnig:
Yfirlit um lög
Yfirlit um lög er varða vinnurétt er að finna á vef Alþingis
Stofnanir
Úrskurðarnefndir
Áhugavert
Réttindi og skyldur á vinnumarkaði
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.