Fjárlög 2025: Halli áætlaður 1,2% af landsframleiðslu
Vegna stjórnarslita og alþingiskosninga í lok nóvember sl. var afgreiðslu fjárlaga flýtt frá því sem áður hafði verið gert ráð fyrir. Í ljósi þrengri tímaramma lagði fjármála- og efnahagsráðuneytið áherslu á að endurmeta afkomuhorfur áranna 2024 og 2025 . Ekki gafst ráðrúm fyrir frekari framreikning fyrir tímabil fjármálaáætlunar til ársins 2029 sem lögð var fram sl. vor. Eftir samþykkt fjárlaganna hefur ráðuneytið unnið að fyrstu drögum að endurmati á afkomuhorfum fyrir árin 2026–2029. Sá framreikningur byggist á forsendum gildandi fjármálaáætlunar, endurskoðaðri þjóðhagsspá fyrir tímabilið sem Hagstofan birti í byrjun nóvember sl. og þeim breytingum og nýjum ákvörðunum sem fólust í afgreiðslu Alþingis í fjárlögum ársins 2025. Rétt er að vekja athygli á því að um er að ræða frummat á horfum áranna 2026–2029 og að ný spá um efnahagsforsendur fyrir framreikningnum verður birt snemma á næsta ári.
Í samanburði við síðustu birtu afkomuhorfur, frá því fjármálaáætlun var samþykkt í júní, eru afkomuhorfur ríkissjóðs fram á við nú lakari. Mismunurinn stafar fyrst og fremst af breyttri afkomu ríkissjóðs árið 2025 og helst sú afkomulækkun, í samanburði við fyrri áætlanir, út tímabilið. Afkoma batnar aftur á móti áfram í svipuðum takti og áður var ráðgert, miðað við forsendur fjármálaáætlunar.
Heildarafkoma A1-hluta ríkissjóðs árið 2025 er nú áætluð neikvæð um 1,2% af vergri landsframleiðslu (VLF). Það er lakari afkoma en áætlað var við framlagningu frumvarpsins í september (-0,8% af VLF) og jafnframt lakari afkoma en áætlað var við framlagningu fjármálaáætlunar 2025-2029 í apríl (-0,5% af VLF). Um tvo þriðju hluta af þessari afkomubreytingu má rekja til lægri tekna, en um einn þriðji stafar af auknum vaxtagjöldum.
Lakari tekjuhorfur stafa að mestu leyti af því að spennan í þjóðarbúinu undanfarin misseri virðist nú hafa verið meiri en áður var talið. Því hefur þurft meiri kólnun efnahagsumsvifa en áður var talið til að ná fram þeirri markvissu lækkun verðbólgu sem nú birtist. Hagkerfið er nú nálægt jafnvægi sem birtist m.a. í því að svipað mörg fyrirtæki vilja fjölga og fækka starfsfólki samkvæmt nýjustu könnun Seðlabankans. Lækkun verðbólgu og vaxta virðist þegar hafa stutt við neyslu heimila á ný og vísbendingar eru um að hún sé byrjuð að vaxa hóflega nú á seinni helmingi 2024.
Lakari horfur hafa ekki í sjálfu sér áhrif á mat á aðhaldsstigi
Þar sem lakari afkomuhorfur 2024 og 2025 leiða ekki beint af ákvörðunum stjórnvalda þá hefur mat á aðhaldsstigi ríkisfjármála lítið breyst. Aðhaldsstigið er áfram metið í námunda við 1% af landsframleiðslu bæði árin. Það er áfram nægur bati til að styðja við hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta.
Batinn í undirliggjandi afkomu 2024 og 2025 leiðir af ákvörðunum á bæði gjalda- og tekjuhlið. Útgjöld ríkissjóðs (án vaxtagjalda) vaxa minna en áætlað jafnvægisstig landsframleiðslunnar bæði árin. Skattkerfisbreytingar auka tekjur ríkissjóðs um 15-20 ma. kr. í ár og annað eins á því næsta. Gagnvart heildarafkomu vegur það þó þyngra, á þessu ári, hvað þenslan í hagkerfinu hefur minnkað hratt, samanborið við 2023. Frumtekjur ríkissjóðs vaxa því heilt á litið minna en útgjöld í ár þrátt fyrir skattkerfisbreytingar.
Afkomuhorfur verða uppfærðar með nýrri þjóðhagsspá í fjármálaáætlun 2026-2030 sem lögð verður fram næsta vor.
- Afkomuhorfur að óbreyttu lakari (Excel)