Samantekt ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir, í kjölfar banaslyss á Breiðamerkurjökli
Á fundi ríkisstjórnar 27. ágúst sl. var ákveðið að koma á fót starfshópi ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis, menningar- og viðskiptaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og dómsmálaráðuneytis til að afla upplýsinga um banaslys sem varð í skipulagðri ferð í jöklaferð á Breiðamerkurjökli sunnudaginn 25. ágúst. sl. og skoða öryggi í íshellaferðum almennt.
Starfshópurinn kallaði eftir skýrslum varðandi atvikið frá Ferðamálastofu og Vatnajökulsþjóðgarði og átti fundi með Veðurstofunni, Vatnajökulsþjóðgarði, Ferðamálastofu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Hornafjarðarbæ, Mýrdalshreppi, Bláskógabyggð, Borgarbyggð, Ferðamálasamtökum Austur- Skaftafellssýslu og Félagi fjallaleiðsögumanna. Samantekt ráðuneytisstjórahópsins var kynnt á fundiríkisstjórnar 8. nóvember. Sjá minnisblað hér.
Í tillögum starfshópsins, sem í framhaldi þarfnast nánari útfærslu í samráði við haghafa, koma fram eftirfarandi ábendingar til úrbóta:
1. Öryggisáætlun ferðaþjónustuaðila jöklaferða verði hluti leyfisveitingaferils
2. Auknar kröfur verði gerðar í samningum Vatnajökulsþjóðgarðs við ferðaþjónustuaðila um menntun og reynslu leiðsögumanna
3. Sömu kröfur verði gerðar til ferðaþjónustuaðila á þjóðlendum og í þjóðgörðum með nýtingarsamningum við sveitarfélög
4. Menntun leiðsögumanna verði betur tryggð innan menntakerfisins og/eða með stuðningi við Félag fjallaleiðsögumanna
5. Unnið verði áhættumat á jöklum sem nýtt verði til að meta áhættu í skipulögðum jöklaferðum
6. Haldin verði skrá um slys og óhöpp í ferðaþjónustu.
Samantekt starfshópsins verður vísað til nánari úrvinnslu innan starfshóps á vegum menningar- og viðskiptaráðherra um bætt öryggi ferðamanna, en sá starfshópur tók til starfa í september á grundvelli þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030 sem samþykkt var í júní sl.
Viðaukar 1-8 með með minnisblaði sem lagt var fyrir ríkisstjórn í morgun:
Viðauki 3 - Um skýrslu starfshóps frá 2021.docx
Viðauki 4 - Fyrirkomulag í Noregi.docx
Viðauki 5 - Ferðamálastefna og aðgerðaáætlun hennar.docx
Minnisblað VÍ og HÍ jöklaferðir 09_2024.pdf
Viðauki 7 - Glærukynning VÍ.pdf
20241001 - Vatnajökulsþjóðgarður - Íshellaferðir og jöklagöngur - samantekt.pdf