Aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks
Mælaborð
Þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025 var samþykkt á Alþingi í júní 2022. Áætlunin er sú fyrsta sem snýr eingöngu að málefnum hinsegin fólks.
Áætluninni fylgir 21 aðgerð en hver og ein þeirra miðar að því að bæta stöðu og réttindi hinsegin fólks, samfélaginu öllu til hagsbóta. Aðgerðirnar eru margvíslegar og snerta sumar mörg svið og þar af leiðandi fleira en eitt ráðuneyti, sem og stofnanir, sveitarstjórnir, félagasamtök og hagsmunaaðila. Lögð er áhersla á fræðslutengd verkefni og vitundarvakningu um málefni hinsegin fólks, enda mikilvægt að auka þekkingu og búa til farveg fyrir málefnalega umræðu um stöðu og réttindi hinsegin fólks. Jafnframt er vikið að lagabreytingum, rannsóknum, stefnumótun og fleiru.
Nr | Aðgerð | Flokkur | Ráðuneyti |
---|---|---|---|
01 | Framkvæmdasjóður hinsegin málefna | A. Stjórnsýslan | Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið |
02 | Staða Íslands á regnbogakorti ILGA-Europe | A. Stjórnsýslan | Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið |
03 | Fræðsla fyrir stjórnendur ríkisins um hinsegin málefni | B. Fræðsla og forvarnir | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
04 | Fræðsla um hinsegin málefni fyrir lögreglu | B. Fræðsla og forvarnir | Dómsmálaráðuneytið |
05 | Hinsegin börn og ungmenni í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi | B. Fræðsla og forvarnir | Mennta- og barnamálaráðuneytið |
06 | Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga | B. Fræðsla og forvarnir | Innviðaráðuneytið |
07 | Kortlagning á stöðu og réttindum hinsegin fólks á Íslandi | C. Rannsóknir, úttektir og kortlagning | Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið |
08 | Líðan hinsegin öryrkja og aldraðra | C. Rannsóknir, úttektir og kortlagning | Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið |
09 | Líðan hinsegin fólks á landsbyggðinni | C. Rannsóknir, úttektir og kortlagning | Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið |
10 | Líðan hinsegin barna og ungmenna í skólum | C. Rannsóknir, úttektir og kortlagning | Mennta- og barnamálaráðuneytið |
11 | Hinsegin fólk og heimilisofbeldi | C. Rannsóknir, úttektir og kortlagning | Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið |
12 | Aðgengi trans fólks – vinnustaðir, sundstaðir, íþróttamannvirki | C. Rannsóknir, úttektir og kortlagning | Forsætisráðuneytið |
13 | Fjölbreytileiki á vinnumarkaði | D. Vinnumarkaður | Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið |
14 | Hinsegin sjávarútvegur og landbúnaður | D. Vinnumarkaður | Matvælaráðuneytið |
15 | Hatursorðræða og hatursglæpir – lagabreytingar | E. Lög og reglur | Dómsmálaráðuneytið |
16 | Breytingar á reglugerðum um hollustuhætti | E. Lög og reglur | Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið |
17 | Verklagsreglur teymis Landspítala um kynvitund og breytingar á kyneinkennum | E. Lög og reglur | Heilbrigðisráðuneytið |
18 | Reglugerð um heilbrigðisþjónustu | E. Lög og reglur | Heilbrigðisráðuneytið |
19 | Reglugerð um blóðgjafir | E. Lög og reglur | Heilbrigðisráðuneytið |
20 | Útfærsla söfnunar og skráningar kyngreindrar tölfræði hjá sveitarfélögum | E. Lög og reglur | Innviðaráðuneytið |
21 | Utanríkisstefna með áherslu á réttindi hinsegin fólks | F. Alþjóðastarf | Utanríkisráðuneytið |
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.